Bara ég í öllu mínu veldi
Textabox
28.05.2008 16:16:11 / gunnykr

jæja... mjakast niður þó hægt sé.

Ég er rétt að skríða inn í mánudagsmarkmiðið mitt núna.
Það er því útséð um það að ég nái ekki markmiði næsta mánudags. Er að fara í orlof þreyttra húsmæðra með vinkonu minni. Erum að fara á 20 ára fermingarhitting þannig að þá verður nú eitthvað sukkað ;)
Ég er búin að missa rúm 5 kg síðan 1. maí.Þá hófst kolvetnisskerti kúrinn minn.
Ég er búin að lettast vel núna fyrstu vikurnar en ég get auðvita ekki búist við að halda áfram að léttast svona hratt. Ætla að fara að setja mér markmið að missa hálft kg á viku fljótlega. Það ætti að vera nokkuð raunhæft. Þegar ég verð komin niður i 75 ætla ég að byrja að borða ávexti aftur. Hlakka mikið til. Ef það hefur ekki neikvæð áhrif, ég held áfram að lettast og svona ætla ég að byrja að borða smá kartöflur, brún hrísgrjón og gróft brauð þegar ég verð komin í 70. Þá í mjöööög litlu magni. Þarf að finna út hvað ég þoli án þess að þyngjast aftur.
Mér finnst farið að grilla í 75 takmarkið, um leið og ég sé 77 á viktinni þá finnst mér ég bara vera komin langleiðina þangað.
Er að vona að ég verði orðin 75 á afmælinu minu. Ætla að taka stranga törn eftir Londonferðina. Æfa mikið og borða mikið. Ætti að ná að hlunkast niður þá. Síðan væri æði að vera kominí 70 þegar skólinn byrjar í haust.Það er kannski frekar óraunhæft en maður má vona. Langar að vera komin í 65 fyrir jól. Spurning hvernig það fer.
Kannski maður ætti að sætta sig við 68 og halda sér þar. Hver veit.
unnur (jeg-get) skrifaði
Það er ekkert sniðugt að vera að setja ser stór markmið í einu þá virðist vera mikið lengra í land.... ég var 75 í byrjun svo vildi ég komast í 73 til að byrja með , svo þegar að ég var komin í 73 þá vildi ég komast í 69 er en að vinna í því EN tölunar eru sko ekki allt ég mæli með að þú mælir þig mánaðarlega umálin eða takir myndir þó að það sé bara fyrir þig..... eg er buin að missa rosalega marga sentimetra en þó eru bara 5 kilo farin :S en vá þú búin að missa 5 kilo fra 1 mai og ég 5 kilo fra 13 agust það er sko dugnaður í þér halda svona áfram :D

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Eilíf barátta við blessuðu aukakílóin....
Hér er ég eina ferðina enn að ströggla við aukapokana sem fylgja mér. Að þessu sinni er stuðst við South beach og hreyfingu. Sjáum hvert það fer með okkur.
Dagsetning
21. mars 2010
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 515 dögum
Ætla ég að vera orðin 75 kg.....